Hægri bakvörðurinn Jonjoe Kenny sem ólst upp hjá Everton hefur ákveðið að skipta yfir til PAOK í Grikklandi.
Kenny hafnaði Sheffield United, Werder Bremen og Köln til að skrifa undir hjá PAOK eftir að samningur hans við Hertha Berlin rann út.
Kenny er 28 ára gamall og gaf 8 stoðsendingar í 32 deildarleikjum í næstefstu deild í Þýskalandi á nýliðinni leiktíð.
Hann spilaði 68 leiki fyrir meistaraflokk Everton og lék meðal annars fyrir Celtic og Schalke á láni áður en hann flutti til Berlínar 2022.
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá þessu og setur „here we go" stimpilinn sinn á skiptin.
Athugasemdir