Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 21:32
Brynjar Ingi Erluson
Óskar Borgþórs nýtti mínúturnar vel
Óskar Borgþórsson átti flotta innkomu af bekknum
Óskar Borgþórsson átti flotta innkomu af bekknum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Borgþórsson og hans menn í norska B-deildarliðinu Sogndal unnu 4-1 sigur á Skeid í kvöld.

Fylkismaðurinn byrjaði á tréverkinu hjá Sogndal en kom inn af bekknum þegar tíu mínútur voru til leiksloka og lagði upp fjórða markið aðeins þremur mínútum síðar.

Óskar hafði ekkert spilað í síðustu fimm leikjum Sogndal, en þessi innkoma ætti að hjálpa honum að sækja mínútur í næstu leikjum.

Sogndal er í 4. sæti B-deildarinnar með 19 stig.

Hinrik Harðarson kom inn af bekknum á lokamínútunum í 1-1 jafntefli Odd gegn Mjöndalen og þá voru þeir Ólafur Guðmundsson og Davíð Snær Jóhannesson báðir í byrjunarliði Álasunds sem tapaði fyrir Kongsvinger, 3-0.

Odd er í 5. sæti með 18 stig en Álasund í 10. sæti með 14 stig.
Athugasemdir
banner