Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 09:55
Elvar Geir Magnússon
50 þúsund auð sæti á leiknum hjá Chelsea
Miðasala á HM félagsliða hefur verið langt undir væntingum.
Miðasala á HM félagsliða hefur verið langt undir væntingum.
Mynd: EPA
Dræm miðasala á HM félagsliða hefur verið nokkuð til umfjöllunar en um 50 þúsund sæti voru laus þegar Chelsea vann Los Angeles FC 2-0 í fyrstu umferð riðlakeppninnar.

Leikurinn hófst klukkan 15:00 að staðartíma á hefðbundnum mánudegi á Mercedes-Benz leikvangnum í Atlanta. Áhorfendur voru 22.137 á leikvangi sem getur tekið 71 þúsund manns.

Áhugavert er að Chelsea lék æfingaleik á þessum sama velli fyrir tveimur árum, gegn Newcastle, og þá var nánast uppselt.

Búið er að lækka miðaverð á leiki HM félagsliða nokkrum sinnum til að reyna að trekkja fólk að. Enn er hægt að kaupa miða á alla leikina á mótinu, ekki er uppselt á einn einasta leik.

„Það var smá furðulegt að spila við þessar aðstæður, leikvangurinn var nánast tómur. Við erum atvinnumenn og verðum að aðlagast aðstæðum," sagði Enzo Maresca, stjóri Chelsea.

Þó nóg sé af lausum sætum á flestum leikjum keppninnar þá var vel mætt á leik Paris St-Germain gegn Atletico Madrid, sem PSG vann 4-0, eða rúmlega 80 þúsund manns.


Athugasemdir
banner