Áhorfendur voru ekki ánægðir þegar þeir horfðu á seinni hálfleikinn í viðureign Boca Juniors gegn Benfica í fyrstu umferð á HM félagsliða.
Leikurinn var gríðarlega skemmtilegur og bauð upp á fjögur mörk og tvö rauð spjöld, en það var mjög mikið um tafir. Í síðari hálfleik var leikurinn stopp í 18 mínútur í heildina, en dómari leiksins gaf aðeins upp 5 mínútur í uppbótartíma.
Af þessum 5 mínútum voru aðeins 2 mínútur og 30 sekúndur spilaðar, eða nákvæmlega helmingurinn.
Síðari hálfleikurinn sá tvö rauð spjöld, eitt mark og tíu skiptingar.
Lokatölur urðu 2-2 eftir að Boca Juniors komst óvænt í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik.
César Arturo Ramos frá Mexíkó dæmdi leikinn.
Boca Juniors take 40 seconds to take a goal kick. Referees whistles at exactly 5 minutes of added time
byu/CPRIANO insoccer
Athugasemdir