Manchester City 2 - 0 WAC Casablanca
1-0 Phil Foden ('2 )
2-0 Jeremy Doku ('42 )
Rautt spjald: Rico Lewis ('82, Man City)
1-0 Phil Foden ('2 )
2-0 Jeremy Doku ('42 )
Rautt spjald: Rico Lewis ('82, Man City)
Manchester City fer vel af stað á HM félagsliða í Bandaríkjunum en liðið vann 2-0 sigur á Wydad frá Marokkó á Lincoln Financial-leikvanginum í Philadelphia í dag.
Phil Foden ætlar að mæta af krafti inn í nýtt tímabil eftir arfaslaka frammistöðu á síðustu leiktíð.
Það tók hann aðeins rúma mínútu að koma Man City í forystu í dag en hann fékk boltann í teignum og setti hann örugglega í hægra hornið.
Wydad fékk fínustu sénsa í fyrri hálfleiknum. Suður-Afríkumaðurinn Thembinkosi Lorch var maðurinn sem var að koma sér í færin, en fór oft illa með góðar stöður.
Undir lok fyrri hálfleiksins bættu City-menn við öðru marki er Jeremy Doku mætti hornspyrnu Foden og stýrði honum í netið. Agalegt varnarskipulag hjá Wydad að leyfa minnsta manninum á vellinum að taka á móti boltanum í miðjum teignum.
Síðari hálfleikurinn var ekki alveg jafn fjörugur og sá fyrri. Rodri, sem var frá allt síðasta tímabil spilaði síðasta hálftímann eins og þeir Oscar Bobb og Erling Braut Haaland.
Nýju mennirnir Tijjani Reijnders og Rayan Cherki byrjuðu báðir í fyrsta sinn með Man City. Cherki spilaði klukkutíma á meðan Reijnders lék allan leikinn.
Rico Lewis, leikmaður Man City, fékk óþarfa rautt spjald á lokamínútunum er hann kastaði sér í tæklingu á Samuel Obeng. Hann vann boltann, en fylgdi á eftir og hæfði síðan höfuð Obeng.
Næsti leikur Wydad er gegn Juventus 22. júní og degi síðar mætast Manchester City og Al Ain.
Athugasemdir