Klukkan 12 verður dregið í fyrstu umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu en Íslandsmeistarar Breiðabliks eru í pottinum. Það er ljóst hvaða fimm mögulegir mótherjar gætu beðið Blika.
Breiðablik gæti dregist gegn Inter Club d'Escaldes frá Andorra, Differdange frá Lúxemborg, Vikingi frá Götu í Færeyjum, Shelbourne frá Írlandi eða Egnatia frá Albaníu.
Dregið verður í Nyon í Sviss, í höfuðstöðvum UEFA, en einvígin í þessari umferð verða spiluð 8./9. júlí og svo seinni leikirnir 15./16. júlí.

Klukkan 14 verður svo dregið í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar en þar eru Valur og Víkingur í pottinum.
Valur gæti dregist gegn Flóru Tallinn frá Eistlandi, KÍ Klaksvík frá Færeyjum, Larne frá Norður-Írlandi eða Kauno Zalgiris frá Litáen.
Víkingur gæti dregist gegn Cliftonville frá Norður-Írlandi, Malisheva frá Kósovó, Nömme Kalju frá Eistlandi eða Haverfordwest County frá Wales.
Bikarmeistarar KA koma inn í aðra umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar en dregið verður í hana á morgun.
Athugasemdir