Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 20:06
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola: Fyrsti leikurinn er alltaf snúinn
Pep Guardiola og Pep Lijnders á bekknum
Pep Guardiola og Pep Lijnders á bekknum
Mynd: EPA
Spænski stjórinn Pep Guardiola var nokkuð ánægður með frammistöðu sinna manna í Manchester City í 2-0 sigrinum á Wydad í fyrstu umferð HM félagsliða í dag.

Phil Foden og Jeremy Doku skoruðu mörk Man City í fyrri hálfleiknum og hefði enska liðið hæglega getað skorað fleiri mörk, en lét tvö nægja.

„Fyrsti leikurinn í riðlakeppni er alltaf snúinn. Við lærum af þessum leik og verðum við mun betri í næsta leik,“ sagði Guardiola.

Hann eyddi ekki mörgum orðum í rauða spjaldið sem Rico Lewis fékk undir lok leiks en vildi þó koma því á framfæri að það hafi verið óviljaverk.

„Hann snertir boltann og ætlaði sér aldrei hamra hann niður. Það er eins og það er.“

Spænski miðjumaðurinn Rodri lítur vel út fyrir að hafa verið frá stærstan hluta síðasta tímabils. Hann lék hálftíma í dag.

„Hann verður okkur mikilvægur. Við verðum að aðlaga marga hluti, en við tökum bara eitt skref í einu. Tímabilið er allt of langt en það er mikilvægt að vera hérna.“

Tijjani Reijnders og Rayan Cherki gengu í raðir félagsins á dögunum, en þeir byrjuðu sinn fyrsta leik í dag. Guardiola var nokkuð sáttur við frammistöðuna.

„Reijnders spilaði ótrúlega flottan leik og Rayan átti nokkur góð augnablik,“ sagði Guardiola í lokin.
Athugasemdir
banner