Fluminense 0 - 0 Borussia Dortmund
Brasilíska félagið Fluminense spilaði við Borussia Dortmund í fyrstu umferð HM félagsliða.
Liðin mættust í gríðarlega miklum hita og var leikurinn bragðdaufur þar sem lítið var um færi.
Fluminense var sterkari aðilinn en tókst ekki að setja boltann í netið svo lokatölur urðu 0-0. Gregor Kobel markvörður Dortmund bjargaði sínum mönnum nokkrum sinnum með frábærum markvörslum.
Markalaust jafntefli staðreynd í fyrstu umferð og er Fluminense enn eitt liðið frá Suður-Ameríku sem hefur verið að stríða evrópsku liðunum í upphafi móts.
Jobe Bellingham, yngri bróðir Jude, kom við sögu í sínum fyrsta keppnisleik með Dortmund eftir að hafa verið keyptur frá Sunderland á dögunum.
Bellingham spilaði síðasta hálftímann í jafnteflinu markalausa.
Mamelodi Sundowns og Ulsan HD eru einnig með í riðlinum. Þau mætast í kvöld.
Athugasemdir