Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
banner
   þri 17. júní 2025 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gætu selt átta leikmenn til að fjármagna kaup á Gyökeres
Gyökeres, 27, kom að 67 mörkum í 52 leikjum með Sporting á nýliðnu tímabili.
Gyökeres, 27, kom að 67 mörkum í 52 leikjum með Sporting á nýliðnu tímabili.
Mynd: EPA
Ítalski miðillinn Corriere dello Sport greinir frá því að stórveldið Juventus gæti selt átta leikmenn í tilraun sinni til að fjármagna kaup á sænska framherjanum Viktor Gyökeres.

Igor Tudor er nýr þjálfari félagsins og er sammála stjórnendum um að breytinga er þörf. Mattia Perin, Lloyd Kelly, Daniele Rugani, Douglas Luiz, Filip Kostic, Samuel Mbangula, Arkadiusz Milik og Dusan Vlahovic eru allir sagðir vera til sölu.

Gyökeres yrði launahæsti leikmaður Juventus en peningarnir sem fást fyrir að selja þessa átta leikmenn myndu nægja til að bæta nokkrum til viðbótar við hópinn.

Tudor vill spila með 3-4-2-1 leikkerfi hjá Juventus og telur Gyökeres vera fullkominn kost fyrir framherjastöðuna. Það er ekki ósvipað leikkerfinu sem Rúben Amorim og Sporting CP notast við þar sem Gyökeres hefur skinið skært í framherjahlutverkinu.

Gyökeres hefur raðað inn mörkunum með Sporting og er meðal annars eftirsóttur af Arsenal og Chelsea, auk Juventus og fleiri stórvelda.
Athugasemdir
banner