Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 11:59
Elvar Geir Magnússon
Útskýrir af hverju hann tók ekki í hendur andstæðingana
Mynd: DAZN
Athygli vakti að Marius Höibraten, fyrirliði Urawa Red Diamonds, tók ekki í hendur leikmanna River Plate áður en liðin áttust við á HM félagsliða.

Mörgum þótti Höibraten sýna óvirðingu og veltu því fyrir sér af hverju Norðmaðurinn gekk framhjá liði River Plate án þess að heilsa leikmönnum.

Höibraten hefur nú svarað og segir að um misskilning hafi verið að ræða. Hann hafi hreinlega óvart sleppt því að taka í hendur andstæðingana.

„Þessar aðstæður voru nýjar fyrir mér og ég hreinlega ruglaðist. Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Þess vegna gekk ég í burtu án þess að taka í hendur. Það var aldrei ætlun mín að sýna óvirðingu og ég bað leikmenn River Plate afsökunar eftir leik. Ég óska þeim til hamingju með sigurinn og óska þeim alls hins besta í komandi leikjum," segir Höibraten.


Athugasemdir
banner
banner