Hinn 29 ára gamli Carlos Cuesta er að taka við ítalska Serie A liðinu Parma en hann hefur verið aðstoðarþjálfari Mikel Arteta hjá Arsenal undanfarin ár.
Cuesta starfaði sem aðstoðarþjálfari hjá U17 liðum Atlético Madrid og Juventus áður en Arteta réði hann í þjálfarateymi sitt hjá Arsenal þegar hann tók við 2020. Þá var Cuesta aðeins 25 ára gamall.
Þegar Cuesta tekur við Parma verður hann næstyngsti þjálfari í sögu Serie A, eftir Elio Loschi sem stýrði Triestina skömmu fyrir upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar 1939.
Viðræður Parma við Arsenal eru á lokastigi samkvæmt færslu frá Fabrizio Romano.
„Það er mjög gott merki að félög séu áhugasöm um þjálfarana okkar. Það þýðir að við erum að gera hlutina rétt," sagði Arteta meðal annars.
Athugasemdir