England og Þýskaland komust bæði áfram í 8-liða úrslit Evrópumóts U21 árs landsliða í kvöld.
Þjóðverjar unnu Englendinga, 2-1, í lokaumferðinni og unnu því alla leiki sína í riðlinum.
Ansgar Knauff og Nelson Weiper skoruðu mörk Þjóðverja í fyrri hálfleiknum. Knauff skoraði eftir frábæra sendingu frá Lukas Ullrich inn á teiginn og kláraði Knauff með frábæru skoti í vinstra hornið.
Weiper skoraði hálftíma síðar með skalla eftir fyrirgjöf Knauff, en Englendingar náðu að svara fimmtán mínútum fyrir leilkslok með marki frá Alex Scott.
Lengra komust Englendingar ekki og 2-1 tap niðurstaðan. England fer samt sem áður áfram í 8-liða úrslit þar sem Tékkar unnu Slóvena, 2-0.
Daniel Fila og Vaclav Sejk skoruðu mörkin í seinni hálfleiknum. Þjóðverjar enduðu efstir með fullt hús stiga, England í öðru með 4 stig, Tékkland í þriðja með 3 stig og Slóvenía í neðsta sæti með aðeins 1 stig.
Englendingar mæta Spánverjum í 8-liða úrslitum á meðan Þjóðverjar spilar við Ítala.
England 1 - 2 Þýskaland
0-1 Ansgar Knauff ('3 )
0-2 Nelson Weiper ('33 )
1-2 Alex Scott ('76 )
Slóvenía 0 - 2 Tékkland
0-1 Daniel Fila ('48 )
0-2 Vaclav Sejk ('59 )
Athugasemdir