Daniel Levy, minnihlutaeigandi og forseti Tottenham, hefur tjáð sig um brottrekstur ástralska þjálfarans Ange Postecoglou.
Það kom einhverjum á óvart þegar Postecoglou var rekinn eftir að hafa leitt Tottenham til langþráðs titils með sigri í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Arfaslakt gengi liðsins í ensku úrvalsdeildinni varð þjálfaranum að falli. Thomas Frank hefur verið ráðinn í hans stað eftir frábæran árangur við stjórnvölinn hjá Brentford.
„Það var tilfinningarík stund þegar við unnum loksins titil í Evrópu en það er ekki nóg. Það sem við gerðum ekki skiptir meira máli. Við þurfum að vinna úrvalsdeildina, það er markmiðið okar. Við viljum vinna úrvalsdeildina og Meistaradeildina," segir Levy.
„Ég er mjög þakklátur Ange og sé ekki eftir að hafa ráðið hann. Við enduðum í fimmta sæti á hans fyrsta tímabili og sigruðum svo Evrópudeildina, en það er ekki nóg. Við verðum að vera samkeppnishæfir í öllum keppnum og okkur í stjórninni fannst breytinga vera þörf. Ange mun alltaf vera partur af sögu félagsins, hann og fjölskylda hans eru alltaf velkomin hérna.
„Við vildum nýjan þjálfara með ferskar hugmyndir sem getur byggt á titlinum frá síðustu leiktíð."
Athugasemdir