Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 16:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Vestra og Þórs: Daði Berg ekki í hóp en Alexander Már óvænt með
Þrír í banni
Alexander Már Þorláksson er óvænt í byrjunarliði Þórs.
Alexander Már Þorláksson er óvænt í byrjunarliði Þórs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Arnar byrjar hjá Vestra.
Guðmundur Arnar byrjar hjá Vestra.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Schubert stendur vaktina í marki Vestra.
Schubert stendur vaktina í marki Vestra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 17:30 tekur Vestri á móti Þór á Kerecis vellinum á Ísafirði. Leikurinn er liður í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Vestri er í þriðja sæti Bestu deildarinnar og Þór er í sjöunda sæti Lengjudeildarinnar. Þór spilaði síðast á laugardag, tapaði þá í Njarðvík, en Vestri spilaði síðast á sunnudag, vann þá gegn KA.

Vestri sló út Breiðablik í síðustu umferð og Þór sigraði Selfyssinga.

Lestu um leikinn: Vestri 2 -  0 Þór

Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, gerir fjórar breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn KA í Bestu deildinni.

Vladimir Tufegdzic, Guðmundur Arnar Svavarsson, Gustav Kjeldsen og Benjamin Schubert koma inn. Jeppe Pedersen er í leikbanni, Daði Berg Jónsson er ekki í hópnum og þeir Anton Kralj og Guy Smit eru á bekknum. Guðmundur Arnar er 22 ára heimamaður.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, neyðist til að gera tvær breytingar vegna leikbanna. Aron Ingi Magnússon og Ibrahima Balde, lykilmenn í liðinu, eru ekki með eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald í keppninni í sigrinum gegn Selfossi. Siggi gerir tvær breytingar til viðbótar frá leiknum gegn Njarðvík. Markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar, Sigfús Fannar Gunnarsson, er ekki í hóp og Clement Bayiha byrjar á bekknum.

Inn koma þeir Orri Sigurjónsson, Ásbjörn Líndal Arnarsson, Sverrir Páll Ingason og mjög svo óvæntur Alexander Már Þorláksson sem hefur ekkert verið með í sumar. Hann hélt á Akranes eftir síðasta tímabil en hafði ekki félagaskipti og má því spila með Þór.

Byrjunarlið Vestri:
1. Benjamin Schubert (m)
2. Morten Ohlsen Hansen
4. Fatai Gbadamosi
5. Thibang Phete
6. Gunnar Jónas Hauksson
7. Vladimir Tufegdzic
10. Diego Montiel
15. Guðmundur Arnar Svavarsson
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson
40. Gustav Kjeldsen

Byrjunarlið Þór :
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
3. Juan Guardia Hermida
4. Hermann Helgi Rúnarsson
5. Yann Emmanuel Affi
7. Orri Sigurjónsson
18. Sverrir Páll Ingason
19. Ragnar Óli Ragnarsson
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson
23. Alexander Már Þorláksson
24. Ýmir Már Geirsson
Athugasemdir
banner