Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 18:46
Brynjar Ingi Erluson
Jói Kalli að fá Adam Inga í markið
Adam Ingi er á leið til AB
Adam Ingi er á leið til AB
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danska félagið AB, sem Jóhannes Karl Guðjónsson stýrir, er að ganga frá kaupum á markverðinum Adam Inga Benediktssyni frá Östersund en það er FotbollDirekt sem greinir frá.

Adam Ingi, sem er 22 ára gamall, gekk í raðir IFK Gautaborg árið 2019 frá HK.

Hann spilaði 12 leiki á tíma sínum hjá sænska úrvalsdeildarfélaginu, en gekk síðan í raðir Östersund á síðasta ári.

Markvörðurinn tók sér ótímabundið leyfi frá fótbolta í byrjun þessa tímabils, en snéri aftur rúmum mánuði síðar.

Fotboll Direkt greinir frá því að hann sé á förum frá Östersund en félagið hefur samþykkt kauptilboð danska C-deildarfélagsins AB í Adam.

Þar hittir hann þrjá aðra Íslendinga. Jóhannes Karl er þjálfari liðsins og þá eru þeir Ágúst Eðvald Hlynsson og Ægir Jarl Jónasson á mála hjá félaginu.

AB átti frábæran endasprett í C-deildinni. Liðið vann sex af síðustu átta leikjum sínum og hafnaði í 4. sæti með 51 stig, átta stigum frá sæti í næst efstu deild.
Athugasemdir
banner
banner