Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 14:30
Elvar Geir Magnússon
Með munnlegt samkomulag við Börsunga
Mynd: EPA
Spænskir fjölmiðlar segja að Barcelona sé búið að gera munnlegt samkomulag við Nico Williams, vængmann Athletic Bilbao, um kaup og kjör.

Williams, sem er 22 ára, er með 58 milljón evru riftunarákvæði í samningi sínum og Börsungar hyggjast virkja það.

Hinsvegar gæti reynst erfitt að skrá leikmanninn og mögulega þarf félagið að losa leikmenn til að standast reglur spænsku deildarinnar.

Talað hefur verið um áhuga Arsenal, Chelsea og Bayern München á Williams en efst á blaði hjá honum sjálfum er að ganga í raðir Barcelona.

Athletic Bilbao bíður eftir því hvernig málin þróast en Barcelona gæti þurft að semja við félagið um að dreifa greiðslum fyrir Williams.
Athugasemdir
banner