Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Margt líkt með Amorim og Guardiola - „Fólk sagði hann hrokafullan“
Ruben Amorim
Ruben Amorim
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Omar Berrada, framkvæmdastjóri Manchester United, segir margt líkt með þeim Ruben Amorim og Pep Guardiola, en hann er viss um sá fyrrnefndi geti komið United aftur í fremstu röð á Englandi.

Berrada starfaði með Guardiola hjá Manchester City áður en hann tók við starfi sínu hjá United.

Man Utd fékk Ruben Amorim til að taka við af Erik ten Hag í nóvember, en fyrsta tímabil hans var algert afhroð. Liðið hafnaði í 15. sæti deildarinnar og tapaði fyrir Tottenham í úrslitum Evrópudeildarinnar.

Liðið vann aðeins sjö deildarleiki undir Amorim, en Berrada segir að það muni taka hann tíma til að koma liðinu aftur á toppinn.

„Þetta var mjög erfitt á fyrsta ári Pep. Hann vann ekkert og það var spurningarmerki hvort hann næði að útfæra hugmyndafræði sína í ensku úrvalsdeildinni. Fólk sagði hann hrokafullan því hann vildi ekki breyta leikstílnum, en hann hélt í prinsippin,“ sagði Berrada sem var spurður hvort hann sæi líkindi milli þeirra og er hann fullviss um það: „Mér finnst þeir mjög líkir.“

Berrada segist búast við frekari erfiðleikum en að allt sé á réttri leið.

„Þetta verður ekki auðvelt og það munu koma erfið augnablik því það mun ekkert leysast eftir einn sumarglugga en við erum á réttri leið.“

„Við erum komnir yfir fyrsta fasa af þessari ummyndun og núna munum við halda áfram að byggja ofan á það. Ég er fullviss um að við munum komast aftur á toppinn,“
sagði Berrada.

Markmið félagsins hefur ekki breyst en það er að vinna ensku úrvalsdeildina fyrir 2028.

„Getur liðið unnið ensku úrvalsdeildina fyrir 2028? Auðvitað. Við höfnuðum í 15. sæti á síðasta tímabili og þetta virðist ómögulegt verkefni, en af hverju ekki að setja stefnuna á það? Af hverju gerum við ekki allt sem í okkar valdi stendur til að ná því?“ sagði Berrada og spurði.
Athugasemdir
banner
banner