Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
banner
   mið 18. júní 2025 10:19
Elvar Geir Magnússon
Burton kveður Jón Daða sem heldur heim til Íslands
Jón Daði á landsliðsæfingu 2021.
Jón Daði á landsliðsæfingu 2021.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Daði Böðvarsson hefur yfirgefið Burton Albion og er á leið heim til Íslands en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Við óskum Jóni og fjölskyldu hans alls hins besta í framtíðinni," segir í tilkynningunni.

Jón Daði er 33 ára framherji og gekk í raðir Burton Albion í janúarglugganum. Hann skoraði fimm mörk í þrettán leikjum og hjálpaði liðinu að halda sér í ensku C-deildinni.

Jón Daði lék um stuttan tíma með Wrexham á liðnu tímabili en hann er fyrrum leikmaður Bolton, Millwall, Reading, Wolves, Kaiserslautern og Viking í Noregi.

Hann er uppalinn Selfyssingur og lék með uppeldisfélaginu í efstu deild 2012. Hann hefur leikið 64 landsleiki og skorað fjögur mörk. Hann lék síðast fyrir landsliðið í mars 2022.

Mynd: Burton


Athugasemdir
banner