Simone Inzaghi var ráðinn sem nýr þjálfari Al-Hilal nokkrum dögum eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar, þar sem Inter steinlá gegn Paris Saint-Germain.
Esteve Calzada er framkvæmdastjóri Al-Hilal og svaraði ýmsum spurningum opinskátt í viðtali á dögunum. Þar greindi hann meðal annars frá því að Inzaghi hafði samþykkt samningstilboð Al-Hilal fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
„Fyrir almenningi gæti þetta litið út fyrir að vera skyndiákvörðun en það er ekki rétt. Við unnum hörðum höndum að þessari ráðningu í góðan tíma. Simone var alltaf skotmark númer eitt fyrir okkur," sagði Calzada meðal annars.
„Hann var að fara að spila risastóran úrslitaleik og bað okkur um að halda þessu leyndu þar til eftir úrslitaleikinn. Hann gerði það í virðingarskyni við Inter.
„Hann er kominn hingað til að koma okkur aftur á toppinn. Annað sæti er ekki nógu gott fyrir Al-Hilal. Við búumst við miklu af honum."
Stjórnendur Inter eru sagðir hafa tekið illa í þessi ummæli frá Calzada. Þeim lýst ekki vel á að þjálfarinn hafi verið búinn að samþykkja tilboð frá sádi-arabíska félaginu fyrir úrslitaleikinn.
Inzaghi fékk risasamning hjá Al-Hilal sem endaði í öðru sæti sádi-arabísku deildarinnar á síðustu leiktíð, átta stigum á eftir Al-Ittihad.
Al-Hilal er í riðli með Real Madrid, RB Salzburg og Pachuca á HM félagsliða í Bandaríkjunum.
Inter komst tvisvar sinnum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar undir stjórn Inzaghi en tapaði í bæði skiptin, fyrst naumlega gegn Manchester City 2023 áður en liðið steinlá gegn PSG um síðustu mánaðamót.
Athugasemdir