Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Eftirsótt Kelly með Arsenal í forgangi
Kvenaboltinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sóknarleikmaðurinn Chloe Kelly hjálpaði Arsenal að vinna Meistaradeild Evrópu í annað sinn þegar hún lék á láni hjá félaginu á nýliðnu tímabili.

Kelly kom til Arsenal á lánssamningi frá Manchester City í janúar og reyndist lykilleikmaður fyrir liðið.

Hún er samningslaus í lok mánaðar og er eftirsótt af stórveldum Chelsea og Manchester United, auk Arsenal. Kelly líður vel hjá Arsenal og er með félagið í forgangi framyfir önnur félög ef samningsviðræður takast vel.

The Athletic segir að Kelly vilji helst skipta til Arsenal en að hún geti ekki beðið endalaust. Ef henni berst ekki nægilega gott tilboð frá félaginu mun hún skoða önnur tilboð.

Kelly leikur sem kantmaður að upplagi og er 27 ára gömul. Hún er eftirsótt af liðum utan Englands þar sem spænsk, frönsk, þýsk og bandarísk félög eru sögð vera áhugasöm.

Kelly er mikilvægur hlekkur í sterku landsliði Englendinga, með 52 leiki að baki.

Arsenal endaði í öðru sæti ensku deildarinnar á síðustu leiktíð, heilum tólf stigum á eftir toppliði Chelsea. Það voru ekki margir sem bjuggust við sigri liðsins gegn Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner