Walker á leið til Everton - Mbeumo vill fara til Man Utd - Gyökeres til Juventus?
   þri 17. júní 2025 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Enska sambandið kærir Coote vegna ummæla um Klopp
Mynd: EPA
Enska fótboltsambandið hefur kært enska dómarann David Coote vegna ummæla hans um Jürgen Klopp, fyrrum stjóra Liverpool.

Samningi Coote sem úrvalsdeildardómara á Englandi var rift í desember eftir að myndband fór í dreifingu þar sem hann fór vondum orðum um Jurgen Klopp og svo annað myndband þar sem hann sést taka kókaín.

Coote baðst afsökunar á hegðun sinni í viðtali við The Sun og greindi um leið frá því að hann væri samkynhneigður en hafði haldið því leyndu af ótta við slæm viðbrögð.

Enska sambandið setti af stað rannsókn á Coote og hefur það nú lagt fram kæru en það kærir hann fyrir ummæli hans um Klopp þar sem hann kallaði þýska stjórann „tussu“.

Einnig var rannsakað um möguleg brot á veðmálareglum, en sambandið hefur lokið þeirri rannsókn og mun ekki aðhafast frekar.

UEFA setti einnig af stað rannsókn eftir að myndband fór í dreifingu af honum er hann dæmdi á EM á síðasta ári, en þar virðist hann sjúga kókaín upp í nefið. UEFA setti Coote í bann sem gildir næsta árið.
Athugasemdir
banner