Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Demiral vill vera áfram í Arabíu þrátt fyrir mikinn áhuga
Demiral er mikilvægur hlekkur í sterku landsliði Tyrklands.
Demiral er mikilvægur hlekkur í sterku landsliði Tyrklands.
Mynd: EPA
Tyrkneski varnarmaðurinn Merih Demiral vill ekki skipta um félag þrátt fyrir mikinn áhuga frá stórliðum úr Evrópu.

Demiral er 27 ára gamall miðvörður sem gerði flotta hluti hjá Juventus og Atalanta áður en hann skipti yfir til Al-Ahli í Sádi-Arabíu.

Demiral er lykilmaður hjá sterku liði Al-Ahli sem vann Meistaradeild Asíu á nýliðnu tímabili, auk þess að eiga 55 landsleiki að baki fyrir Tyrkland.

Fenerbahce og Atlético Madrid hafa bæði sýnt Demiral mikinn áhuga, en hann er á ofurlaunum hjá Al-Ahli.

Varnarmaðurinn á þó aðeins eitt ár eftir af samningi við Al-Ahli, en félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá því að hann mun líklega skrifa undir nýjan samning við félagið.
Athugasemdir
banner