„Bæði lið skora eitt mark. Þróttararnir voru frábærir í fyrri hálfleik og við vorum í vandræðum. Ég hefði viljað sjá okkur fylgja eftir markinu en við misstum tökin. Við tökum öll völd í seinni hálfleik og náðum því miður ekki að skora. Við fengum frábær færi í seinni hálfleik. " Segir Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA eftir 1-1 jafntefli gegn Þrótti Reykjavík í kvöld.
Lestu um leikinn: Selfoss 2 - 2 Þór
Deildin er ansi jöfn og erfitt að segja til um hvernig hún fer. Flest öll liðin eru í baráttu um eitthvað sem gerir leiki erfiðari fyrir stærri liðin eins og ÍA.
„Mér fannst Þróttarnir frábærir í dag og þeir eru ólánsamir að undanföru og eru að klúðra víti og annað slíkt. Þeir hafa verið að spila góðan fótbolta eins og við vissum. Það kom okkur ekkert á óvart en við hefðum getað gert hluti betur í fyrri hálfleik. Við hefðum átt að vinna leikinn í seinni."
Eins og Jón Þór kom inná var fyrri hálfleikurinn ekki nógu góður hjá Skagamönnum.
„í fyrri hálfleik vorum við útur skipulagi og vorum að elta menn um allan völl og gefa þeim svæði. Þeir eru áræðnir og öflugir fram á við. Þeir opnuðu okkur ekkert þannig. Við hefðum átt að taka meiri stjórn er við komust yfir."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
























