Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
Linda Líf: Það trylltist allt
Glódís: Ótrúlega stolt að spila fyrir Ísland
Emilía Kiær: Kannski hefði hann farið inn á öðrum degi
Ída Marín: Þessi í markinu var ótrúlega pirrandi
Sveindís: Þetta er ekki bölvun - stundum vantar bara heppnina
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
   fim 23. maí 2013 23:02
Sebastían Sævarsson Meyer
Óli Jó: Ávísun á vesen ef menn verða hræddir
Ólafur Jóhannesson.
Ólafur Jóhannesson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég er fyrst og fremst ánægður með stigin þrjú, við vorum að spila á móti góðu Selfoss liði," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Hauka, eftir 3-2 sigurinn á Selfossi í 1. deild karla í kvöld.

,,Við vissum það fyrir leikinn að þeir myndu kannski liggja til baka á okkur. Mér fannst við vera mun betri í fyrri hálfleik og vorum með góða stjórn á leiknum en síðan duttum við aðeins til baka í seinni hálfleik og það lá svolítið á okkur. En ég er fyrst og fremst ánægður með stigin.“

Eftir að Javier Zurbano Lacalle hafði komið heimamönnum yfir sneru Haukar blaðinu við með mörkum frá Hilmari Trausta Arnarssyni, Brynjari Benediktssyni og Hilmari Geir Eiðssyni í fyrri hálfleik.

,,Við héldum boltanum vel í fyrri hálfleik og létum hann rúlla vel. Við sköpuðum okkur nóg af færum til að gera þrjú, fjögur, fimm mörk. Ég er fyrst og fremst ánægður með það og ég er líka ánægður með að við skildum lifa seinni hálfleikinn af með miklum dugnaði," hélt Ólafur áfram.

Leikmenn Hauka duttu til baka í seinni hálfleik og minnkaði Josep David Yoffe síðan muninn í eitt mark fyrir Selfyssinga.

,,Við ætluðum ekki að liggja til baka en þetta gerist í fótbolta, menn verða hræddir og ætla verja sitt með að detta til baka. Það er ávísun á vesen," bætti Ólafur við sem er bjartsýnn á framhaldið en liðið er í öðru sæti með sex stig.

,,Það eru bara þrír leikir búnir og liðin eru að slípast til. Við eigum eftir að verða betri og ég er ánægður með spilamennskuna fram að þessu. Við verðum bara betri og betri eftir því sem líður á sumarið."

Nánar er rætt við Ólaf í viðtalinu hér að ofan þar sem hann hrósar vallaraðstæðum á Selfossi í hástert.
Slapp
banner
banner