„Jákvætt að fá þrjá punkta en þetta var ekki alveg nógu góð frammistaða hjá okkur, við erum ekkert svakalega ánægðir með það en þrír punktar." sagði Hlynur Freyr Karlsson leikmaður Vals eftir sigurinn á Fram á Origo vellinum í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 0 Fram
„Við áttum bara að nýta færin okkar betur og það er svona það fyrsta sem ég pæli í strax eftir leik."
„Þeir mættu bara almennilega í seinni hálfleikinn og þú veist ég veit ekki hvað ég get sagt meira."
Valur spilar gegn KR í Reykjavíkurslag í næstu umferð. Hvernig lýst Hlyni á þann Reykjavíkurslag?
„Við þurfum að gíra okkur almennilega upp í þann leik og mæta almennilega til leiks."
Hvað þarf liðið að gera til að vinna KR?
„Mæta til leiks bara, byrjum þar og síðan sjáum við hvað gerist."
Athugasemdir






















