"Já þetta eru búnir að vera erfiðir dagar. Fyrir leikmenn og okkur sem stjórna liðinu. Svo sjáum við í dag að menn fóru eftir plani og lögðu hjartað í leikinn. Við unnum leikinn vegna þess," sagði Dean Martin, þjálfari Selfoss eftir langþráðan sigur gegn Grindavík í kvöld.
Lestu um leikinn: Selfoss 2 - 0 Grindavík
"Það er ekki auðvelt að koma til baka eftir svona skell eins og í seinustu viku og ég er rosalega stoltur af leikmönnunum. Þeir eiga 100% credit skilið hvernig þeir tækluðu þetta."
"Þetta snýst um að mæta og horfa í andlitin á hvor öðrum. Við ræddum saman og þurftum svo bara að halda áfram."
Þorsteinn Aron Antonsson hefur ekki spilað með liðinu í undanförnum leikjum og verið orðaður við Val. Hann var mættur aftur í liðið í dag og skoraði seinna mark liðsins. "Staðan er þannig núna að hann spilaði í dag. Ég veit ekki meira um það. Ég er mjög þakklátur að hafa haft hann í dag því þú sást hvaða gæði hann hafði með Adrian (Sanchez) aftast í vörninni. Þeir spiluðu vel saman. Þorsteinn er góður leikmaður og þangað til ég frétti annað er hann Selfyssingur."




















