Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 27. janúar 2021 23:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ógleymanlegur dagur fyrir Jóhann Berg
Jóhann Berg í leik með íslenska landsliðinu.
Jóhann Berg í leik með íslenska landsliðinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson átti ógleymanlegan dag.

Hann eignaðist nefnilega annað barn sitt í morgun, son. Hann greinir frá þessu á Instagram.

Svo í kvöld kom hann inn á sem varamaður þegar Burnley vann magnaðan sigur á Aston Villa á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni. Burnley var 2-1 undir þegar Jóhann kom inn á, en tókst að vinna leikinn 3-2.

„Sonur minn fæddist í morgun og þrjú stig í kvöld. Þvílíkur dagur sem þetta var," skrifaði Jóhann Berg á Instagram. Hann birti fallega mynd af þeim feðgum sem sjá má hér að neðan.




Athugasemdir
banner
banner
banner