Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 18:57
Ívan Guðjón Baldursson
Þægilegur sigur í Serbíu í síðasta leik fyrir stórmót
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: KSÍ
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Serbía 1 - 3 Ísland
0-1 Sandra María Jessen ('3)
0-2 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('5)
0-3 Sveindís Jane Jónsdóttir ('58)
1-3 Miljana Ivanovic ('66)

Lestu um leikinn: Serbía 1 -  3 Ísland

Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu lögðu Serbíu að velli í síðasta æfingaleik sínum fyrir EM.

Stelpurnar fóru gríðarlega vel af stað og komust í tveggja marka forystu á fyrstu fimm mínútum leiksins eftir að hafa unnið boltann hátt uppi á vellinum.

Sandra María Jessen og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoruðu mörkin eftir undirbúning frá Alexöndru Jóhannsdóttur og Sveindísi Jane Jónsdóttur.

Stelpurnar komust nokkrum sinnum í stórhættulegar stöður á næstu mínútum en tókst ekki að skora. Leikurinn róaðist svo aðeins niður þegar tók að líða á fyrri hálfleikinn og staðan var 0-2 fyrir Ísland í leikhlé.

Síðari hálfleikurinn var talsvert jafnari þar sem Serbarnir sýndu flottar rispur en gæðamunur leikmanna var augljós þegar Sveindís Jane skoraði stórglæsilegt mark eftir ótrúlegt einstaklingsframtak.

Sveindís fékk boltann á eigin vallarhelmingi og óð upp völlinn. Hún hljóp langa leið og fór framhjá nokkrum Serbum áður en hún lét vaða á markið með glæsilegu skoti utan teigs og endaði boltinn undir samskeytunum. Hefði Sveindís skorað þetta mark á EM væri það án nokkurs vafa eitt af bestu mörkum mótsins.

Miljana Ivanovic kom inn í hálfleik í liði Serba og var hún afar lífleg. Hún átti gott færi í síðari hálfleiknum áður en hún minnkaði muninn með eina marki Serba í leiknum. Miljana gerði afar vel að leika á Glódísi Perlu Viggósdóttur áður en hún skoraði framhjá Cecilíu Rán Rúnarsdóttur. Miljana leikur fyrir London City Lionesses í ensku ofurdeildinni.

Þetta mark dugði þó ekki fyrir Serbíu þar sem lokatölur leiksins urðu 1-3. Flottur sigur fyrir Ísland sem hefði mátt vera stærri.

   27.06.2025 18:26
Sveindís með ruglað mark

Athugasemdir