„Nei við erum ekki sáttir,“ Sagði Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Tindastóls eftir leik. “Við vildum öll þrjú. Við vorum einum fleiri í það langan tíma að við settum allt púður í að klára leikinn. Einum fleiri á heimavelli þá eigum við að klára leikinn.“
Það gekk ekkert of vel að koma sér í færi þrátt fyrir það að gestirnir voru manni færri allan seinni hálfleikinn.
„Já og nei, eðlilega. Þér þéttu sig vel til baka og þetta er frábært lið. Þeir voru vel skipulagðir og það gekk ekki alveg nógu vel að brjóta þá á bak aftur en hinsvegar fengum við nokkur góð færi til að klára leikinn og klárlega áttum við að klára það. Þá hefði þetta dottið okkar megin og allir verið ánægðir hér í dag.“
Þetta var nokkuð agaður leikur hjá báðum liðum í kvöld fyrir utan fimmtán mínútur undir lok fyrri hálfleiks.
„Já ég get verið nokkuð sammála því að þetta var nokkuð agaður leikur allan tíman fyrir utan þennan kafla. Bæði lið eru í neðri hlutanum og vilja lítil færi gefa á sér eins og eðlilegt er. Þar af leiðandi bitnar það aðeins á skemmtanagildi leiksins en hinsvegar fengu áhorfendur fullt fyrir peninginn, fjögur mörk, tvö víti rautt og allur pakkinn.“
Nánar er rætt við Donna í sjónvarpinu hér fyrir ofan.
























