Delap nálgast Man Utd - Rift við Laporte - Arsenal og Liverpool berjast um Huijsen
   lau 31. ágúst 2024 20:56
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: Tindastóll meistari - Mikilvægur sigur Ýmis
Mynd: Tindastóll
Tindastóll varð í dag meistari í 4. deild karla eftir 1-0 sigur liðsins á Árborg á Sauðárkróksvelli.

Stólarnir hafa átt frábært tímabil og ekki skemmdi fyrir að tryggja titilinn á heimavelli.

Dominic Louis Furness gerði eina markið sem tryggði liðinu sæti í 3. deild.

Nú er bara spurningin hvort það verður Árborg eða Ýmir sem fylgja Stólunum upp.

Ýmir er í öðru sæti með 34 stig eftir að hafa unnið KFS, 3-1, í Vestmannaeyjum á meðan Árborg er með 32 stig í 3. sæti.

Ýmismenn spila við Hamar í lokaumferðinni á meðan Árborg spilar við Skallagrím. Þess má geta að Ýmir tapaði fyrir Hamri, 5-2, í fyrri leik liðanna á tímabilinu.

Skallagrímur 5 - 2 RB
1-0 Declan Joseph Redmond ('19 )
1-1 Makhtar Sangue Diop ('36 )
1-2 Paul Kampely Sylva ('45 )
2-2 Sigurður Arnar Sigurðsson ('55 )
3-2 Viktor Ingi Jakobsson ('68 )
4-2 Recoe Reshan Martin ('88 )
5-2 Viktor Már Jónasson ('90 )

Tindastóll 1 - 0 Árborg
1-0 Dominic Louis Furness ('43 )

KFS 1 - 3 Ýmir
0-1 Jón Arnór Guðmundsson ('26 )
1-1 Heiðmar Þór Magnússon ('48 )
1-2 Þórður Jón Jóhannesson ('67 )
1-3 Gabriel Delgado Costa ('90 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner