Fiorentina 2 - 2 Torino
0-1 Cesare Casadei ('26 )
1-1 Manor Solomon ('51 )
2-1 Moise Kean ('57 )
2-2 Guillermo Maripan ('94)
0-1 Cesare Casadei ('26 )
1-1 Manor Solomon ('51 )
2-1 Moise Kean ('57 )
2-2 Guillermo Maripan ('94)
Fiorentina tók á móti Torino í neðri hluta ítölsku deildarinnar í dag og náðu gestirnir forystunni í fyrri hálfleik þegar Cesare Casadei var skilinn eftir einn og yfirgefinn innan vítateigs og skallaði fyrirgjöf frá Emirhan Ilkhan í netið af stuttu færi.
Fiorentina var sterkari aðilinn og fékk Moise Kean færi til að jafna metin sem hann klúðraði.
Í upphafi síðari hálfleiks var það Manor Solomon, sem er hjá Fiorentina á lánssamningi frá Tottenham, sem skoraði glæsilegt mark með skoti úr D-boganum. Hann er kominn með tvö mörk í tveimur síðustu leikjum Fiorentina.
Sex mínútum síðar lét Kean fyrirgefa sér klúðrin frá því fyrr í leiknum með frábærri afgreiðslu eftir sendingu frá Jack Harrison, lánsmanni frá Leeds.
Harrison hafði komið inn af bekknum í upphafi síðari hálfleiks eftir að Albert Guðmundsson haltraði af velli með aðstoð frá sjúkraþjálfurum.
Fiorentina hélt forystunni allt þar til í uppbótartímanum þegar gestirnir náðu að gera jöfnunarmark með laglegum skalla eftir aukaspyrnu. Guillermo Maripán var þar á ferðinni og kom David de Gea engum vörnum við.
Fiorentina er áfram í fallsæti eftir þetta jafntefli, með 18 stig eftir 24 umferðir. Torino er með 27 stig.
Athugasemdir



