Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
banner
   lau 07. febrúar 2026 20:37
Ívan Guðjón Baldursson
Iraola svekktur með gott stig - Emery sáttur
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Bournemouth og Aston Villa skildu jöfn 1-1 í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem gestirnir í liði Aston Villa voru stálheppnir að bjarga stigi.

Bournemouth var talsvert sterkara liðið og skapaði mikið af góðum færum en lenti undir í fyrri hálfleik. Rayan skoraði jöfnunarmark í síðari hálfleik og var Andoni Iraola þjálfari svekktur að leikslokum.

„Þetta er gott stig gegn sterkum andstæðingum en miðað við hvernig leikurinn spilaðist þá er það ekki nóg. Við vorum betra liðið en okkur tókst ekki að sigra. Emi Martínez er svo fáránlega góður í hvert einasta skipti sem við mætum honum, það er svo erfitt að skora framhjá honum. Það er ástæða fyrir því að hann er heimsmeistari," sagði Iraola.

„Ég sagði við strákana í hálfleik að halda áfram að spila eins og í fyrri hálfleik, það var bara tímaspursmál hvenær markið kæmi."

Unai Emery þjálfari Aston Villa svaraði einnig fréttamönnum eftir jafnteflið.

„Þetta er mjög gott stig á erfiðum velli. Við börðumst í fyrri hálfleik og stjórnuðum leiknum á köflum. Við þurftum á vörninni að halda og náðum að skapa færi í sókn og skoruðum mark. Þetta var jafn leikur í fyrri hálfleik," sagði Emery, en staðreyndin er sú að Bournemouth var talsvert hættulegri aðilinn fyrstu 45 mínúturnar.

„Seinni hálfleikurinn var ekki jafn góður, þeir voru mikið inni í vítateignum okkar og sköpuðu fleiri færi heldur en við. Þetta er mjög gott stig fyrir okkur."

Aston Villa er í þriðja sæti með 47 stig eftir 25 umferðir. Bournemouth situr í ellefta sæti með 34 stig.
Athugasemdir
banner
banner