Man Utd hefur áhuga á miðjumanni Bournemouth - Emery gæti yfirgefið Aston Villa - Klopp er ekki í viðræðum við Real Madrid.
   lau 07. febrúar 2026 16:43
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Mikilvægt sigurmark Guirassy - Tíu Freiburg-menn unnu Bremen
Serhou Guirassy skoraði sigurmarkið undir lokin
Serhou Guirassy skoraði sigurmarkið undir lokin
Mynd: EPA
Freiburg vann manni færri gegn Bremen
Freiburg vann manni færri gegn Bremen
Mynd: EPA
Serhou Guirassy skoraði ótrúlega mikilvægt sigurmark Borussia Dortmund í 2-1 sigri á Wolfsburg í 21. umferð þýsku deildarinnar í dag.

Dortmund-menn reyna að setja pressu á Þýskalandsmeistara Bayern München í titilbaráttunni.

Julian Brandt skoraði fyrir Dortmund á 38. mínútu, en Grikkinn Kostas Koulierakis jafnaði á 52. mínútu eftir stoðsendingu Christian Eriksen.

Þremur mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma tókst Gíneu-manninum Serhou Guirassy að tryggja Dortmund dýrmætan sigur, en Dortmund er aðeins þremur stigum frá toppliði Bayern.

St. Pauli vann óvæntan 3-1 sigur á Stuttgart. Manolis Saliakas og vítaspyrnumark frá Daniel Sinani kom St. Pauli í 2-0 áður en Jamie Leweling skoraði sárabótarmark fyrir Stuttgart undir lok leiksins.

Tíu leikmenn Freiburg unnu Werder Bremen 1-0. Vængbakvörðurinn Jan-Niklas Beste skoraði sigurmarkið með stórkostlegu skoti eftir hraða skyndisókn á 13. mínútu.

Johan Manzambi, leikmaður Freiburg, sá beint rautt snemma í síðari hálfleiknum, en það hafði ekki áhrif á heimamenn sem komu boltanum í annað sinn í netið í gegnum Yuito Suzuki. Markið var hins vegar dæmt af vegna brots í aðdragandanum.

Tíu menn Freiburg létu það ekki á sig fá og náðu að halda út, en Freiburg er í 7. sæti með 30 stig, fimm stigum frá Evrópusæti á meðan Bremen er í fallsæti með 19 stig.

Úrslit og markaskorarar:

St. Pauli 2 - 1 Stuttgart
1-0 Manolis Saliakas ('35 )
2-0 Danel Sinani ('55 , víti)
2-1 Jamie Leweling ('90 )

Heidenheim 0 - 2 Hamburger
0-1 Ransford Konigsdorffer ('45 )
0-2 Rayan Philippe ('78 )

Wolfsburg 1 - 2 Borussia D.
0-1 Julian Brandt ('38 )
1-1 Konstantinos Koulierakis ('52 )
1-2 Serhou Guirassy ('87 )

Freiburg 1 - 0 Werder
1-0 Niklas Beste ('13 )
Rautt spjald: Johan Manzambi, Freiburg ('52)

Mainz 2 - 0 Augsburg
1-0 Nadiem Amiri ('8 , víti)
2-0 Nadiem Amiri ('79 , víti)
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 25 21 3 1 92 24 +68 66
2 Dortmund 25 16 7 2 53 26 +27 55
3 Hoffenheim 25 15 4 6 53 33 +20 49
4 Stuttgart 25 14 5 6 50 34 +16 47
5 RB Leipzig 25 14 5 6 48 34 +14 47
6 Leverkusen 25 13 5 7 48 32 +16 44
7 Frankfurt 25 9 8 8 48 49 -1 35
8 Freiburg 25 9 7 9 37 42 -5 34
9 Augsburg 25 9 4 12 31 43 -12 31
10 Hamburger 25 7 8 10 28 36 -8 29
11 Union Berlin 25 7 7 11 30 42 -12 28
12 Gladbach 25 6 7 12 28 43 -15 25
13 Werder 25 6 7 12 29 45 -16 25
14 Köln 25 6 6 13 34 43 -9 24
15 Mainz 25 5 9 11 29 41 -12 24
16 St. Pauli 25 6 6 13 23 40 -17 24
17 Wolfsburg 25 5 5 15 34 55 -21 20
18 Heidenheim 25 3 5 17 24 57 -33 14
Athugasemdir
banner