Genoa 2 - 3 Napoli
1-0 Ruslan Malinovskyi ('3, víti)
1-1 Rasmus Hojlund ('20 )
1-2 Scott McTominay ('22 )
2-2 Lorenzo Colombo ('57 )
2-3 Rasmus Hojlund ('95, víti)
Rautt spjald: Juan Jesus, Napoli ('76)
1-0 Ruslan Malinovskyi ('3, víti)
1-1 Rasmus Hojlund ('20 )
1-2 Scott McTominay ('22 )
2-2 Lorenzo Colombo ('57 )
2-3 Rasmus Hojlund ('95, víti)
Rautt spjald: Juan Jesus, Napoli ('76)
Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn á miðjunni hjá Genoa sem tók á móti Ítalíumeisturum Napoli í fyrri leik dagsins í Serie A.
Heimamenn fengu dæmda vítaspyrnu snemma leiks þegar Alessandro Buongiorno átti hörmulega sendingu til baka á markmann og komst Vitinha inn á milli. Alex Meret felldi Portúgalann og vítaspyrna dæmd. Ruslan Malinovskyi steig á punktinn og skoraði örugglega í mitt markið.
Napoli var sterkari aðilinn og skoraði Rasmus Höjlund jöfnunarmark framhjá götóttri vörn Genoa. Höjlund var réttur maður á réttum stað þegar Justin Bijlow varði marktilraun frá Scott McTominay út í vítateiginn og skoraði Daninn af stuttu færi.
Skömmu síðar náði McTominay forystunni með glæsilegu marki af um 30 metra færi, svo staðan var 1-2 í leikhlé.
Napoli var sterkari aðilinn en Lorenzo Colombo tókst að jafna metin í síðari hálfleik eftir önnur herfileg mistök hjá Buongiorno, sem Antonio Conte kippti af velli í kjölfarið. Skömmu síðar fékk Juan Jesus að líta gult spjald og á 76. mínútu sá hann seinna gula spjaldið, svo meistararnir þurftu að klára leikinn leikmanni færri.
Heimamenn í Genúa sóttu en þeim tókst ekki að skapa sér færi. Þeim tókst heldur ekki að nýta liðsmuninn útaf því að það voru gestirnir sem áttu lokaorðið.
Antonio Vergara, sem hefur komið sem stormsveipur inn í byrjunarlið Napoli í vetur, fékk dæmda vítaspyrnu í uppbótartíma og skoraði Höjlund af punktinum það sem reyndist sigurmarkið fyrir tíu leikmenn Napoli.
Ítalíumeistararnir eru í þriðja sæti með 49 stig eftir 24 umferðir, sex stigum á eftir toppliði Inter sem er með leik til góða.
Mikael og félagar eru sex stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 23 stig úr 24 leikjum.
Athugasemdir



