Það voru nokkur Íslendingalið sem mættu til leiks í dag þar sem Willum Þór Willumsson fékk að spreyta sig í þægilegum sigri hjá NEC Nijmegen í efstu deild í Hollandi.
Willum er nýkominn til félagsins úr röðum Birmingham og fékk að spila lokakafla leiksins í 4-1 sigri. Nijmegen er spútnik lið tímabilsins í Hollandi og situr í öðru sæti með 41 stig eftir 21 umferð - langt á eftir toppliði PSV Eindhoven.
Í efstu deild í Króatíu voru Logi Hrafn Róbertsson og Danijel Dejan Djuric báðir utan hóps þegar Istra tapaði óvænt gegn fallbaráttuliði Vukovar 1991. Istra er í þriðja sæti með 30 stig eftir 21 umferð.
Danijel Dejan og Logi Hrafn virðast ekki vera inni í myndinni hjá Oriol Riera þjálfara. Þeir hafa komið lítið við sögu með liðinu frá félagaskiptum úr íslenska boltanum fyrir ári síðan.
Bjarki Steinn Bjarkason var heldur ekki í hóp þegar Venezia lagði Frosinone að velli í toppslag Serie B deildarinnar. Feneyingar eru með fjögurra stiga forystu á toppinum, með 50 stig eftir 23 umferðir.
Í efstu deild í Grikklandi lék Davíð Kristján Ólafsson allan leikinn í vinstri bakvarðarstöðunni er AEL Larissa steinlá á heimavelli gegn Panetolikos. Larissa er í fallbaráttu með 19 stig eftir 20 umferðir, einu stigi meira heldur en andstæðingar dagsins.
Hjörtur Hermannsson lék einnig allan leikinn er Volos tapaði gegn fallbaráttuliði Asteras Tripolis. Þetta var sjötta tapið í röð hjá Volos í öllum keppnum en liðið er með 25 stig eftir 20 umferðir í deildarkeppninni.
Í neðri deildunum á Englandi voru hvorki Benoný Breki Andrésson né Jason Daði Svanþórsson í hóp í markalausum jafnteflum hjá Stockport County og Grimsby Town í League One og League Two. Bæði lið eru að berjast um að komast upp um deild þetta tímabilið.
NEC Nijmegen 4 - 1 Heracles
Istra 1961 1 - 4 Vukovar 1991
Frosinone 1 - 2 Venezia
AEL Larissa 1 - 4 Panetolikos
Asteras Tripolis 2 - 0 Volos
Stockport 0 - 0 Leyton Orient
Newport 0 - 0 Grimsby
Athugasemdir



