Ronaldo má fara - Chelsea í baráttuna um Vlahovic - Ramos aftur í frönsku deildina?
   lau 07. febrúar 2026 17:34
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Skoraði sitt fyrsta mark fyrir Barca
Mynd: EPA
Barcelona 3 - 0 Mallorca
1-0 Robert Lewandowski ('29 )
2-0 Lamine Yamal ('61 )
3-0 Marc Bernal ('83 )

Barcelona tók á móti Mallorca í fyrsta leik dagsins í spænsku deildinni og skóp þægilegan sigur í skemmtilegum leik.

Börsungar voru sterkari aðilinn en gestirnir frá Mallorca bitu frá sér og fengu nokkur góð færi til að skora en tókst ekki.

Robert Lewandowski gerði eina markið í fyrri hálfleik þegar boltinn datt heppilega fyrir hann innan vítateigs eftir marktilraun frá Lamine Yamal. Pólski reynsluboltinn var sallarólegur og kláraði með marki eftir að varnarmaður Mallorca lagðist í jörðina í tilraun til að koma í veg fyrir skot.

Börsungar fengu góð færi en tókst ekki að tvöfalda forystuna fyrr en í síðari hálfleik. Lamine Yamal var þar á ferðinni með glæsilegu skoti af rúmlega 20 metra færi sem markvörður Mallorca skutlaði sér ekki einu sinni í.

Gestirnir reyndu að minnka muninn á lokakaflanum en fengu mark í bakið. Hinn bráðefnilegi Marc Bernal óð upp í skyndisókn og gerði virkilega vel að halda boltanum og klára með marki til að innsigla 3-0 sigur.

Þetta var fyrsta mark Bernal fyrir aðallið Barca en hann er aðeins 18 ára gamall.

Barca er með fjögurra stiga forystu í spænsku titilbaráttunni en Real Madrid á leik til góða.

Mallorca er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 23 19 1 3 63 23 +40 58
2 Real Madrid 22 17 3 2 47 18 +29 54
3 Atletico Madrid 22 13 6 3 38 17 +21 45
4 Villarreal 21 13 3 5 39 23 +16 42
5 Betis 22 9 8 5 36 28 +8 35
6 Espanyol 22 10 4 8 26 27 -1 34
7 Celta 23 8 9 6 30 25 +5 33
8 Osasuna 23 8 5 10 28 28 0 29
9 Real Sociedad 22 7 7 8 30 30 0 28
10 Alaves 22 7 4 11 20 27 -7 25
11 Athletic 22 7 4 11 21 31 -10 25
12 Girona 22 6 7 9 21 36 -15 25
13 Elche 22 5 9 8 30 32 -2 24
14 Sevilla 22 7 3 12 29 37 -8 24
15 Mallorca 23 6 6 11 28 37 -9 24
16 Getafe 22 6 5 11 16 27 -11 23
17 Valencia 22 5 8 9 23 35 -12 23
18 Vallecano 22 5 7 10 18 30 -12 22
19 Levante 21 4 6 11 24 34 -10 18
20 Oviedo 22 3 7 12 12 34 -22 16
Athugasemdir
banner
banner