Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 10. febrúar 2018 10:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jón Daði með mark mánaðarins hjá Reading
Mynd: Getty Images
Jón Daði Böðvarsson átti góðan janúarmánuð hjá Reading, hann skoraði fimm mörk en fyrir eitt þeirra var hann verðlaunaður. Hann átti mark mánaðarins hjá Reading!

Hann skoraði þrennu í enska bikarnum gegn Stevenage þann 16. janúar en eitt af mörkum hans í þeim leik var valið það besta hjá Reading í þessum mánuði.

Það kom fyrigjöf frá vinstri og Jón Daði náði góðum skalla. Hann var langt frá markinu er hann skallaði en það breytti litlu.

„Það var gott að ná þrennu og ég var ánægður með þetta mark," sagði Jón Daði í samtali við heimasíðu Reading eftir að tilkynnt var að mark hans væri mark mánaðarins.

Hér að neðan má sjá markið og viðtal við Jón Daða en í viðtalinu talar hann jafnframt um að nú sé mikilvægast að Reading fari að vinna leiki. Liðið er í neðri hluta Championship-deildarinnar.






Athugasemdir
banner
banner
banner