Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   fim 16. maí 2019 22:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristján Ómar: Skorti gæði til að búa til stöður
Kristján Ómar Björnsson.
Kristján Ómar Björnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Ómar Björnsson, þjálfari Hauka, var svekktur eftir jafntefli gegn Fram í Inkasso-deildinni í kvöld.

„Ég er svekktur tveimur mínútum eftir leik að hafa náð að nýta þessa hálftíma manni fleiri stöðu. Þetta var 50/50 leikur og jafntefli niðurstaðan. Það er erfitt fyrir okkur að kvarta yfir því miðað við þessa frammistöðu," sagði Kristján Ómar.

Lestu um leikinn: Fram 1 -  1 Haukar

Haukar voru einum fleiri frá 25. mínútu eftir að Marcao, leikmaður Fram, fékk rauða spjaldið.

„Það skorti bara gæði til að búa til stöður í þessari yfirtölu sem við vorum í. Þeir héldu varnarlínunni sinni hátt uppi manni færri og voru merkilega hugrakkir í því. Miðað við hlutina sem við höfum verið að æfa þá er ég svekktur að hafa ekki náð að skapa fleiri færi."

Haukar eru með tvö stig eftir þrjá leiki. Það hlýtur að vera svekkjandi?

„Nei ég lít ekki á það þannig. Við spiluðum við Fjölni í fyrsta leik og Víking Ó.. Fyrir fram er eitt stig ágætis niðurstaða í því. Fram-liðið er með sjálfstraust núna."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner