Daniel Farke, stjóri Leeds, vill styrkja hóp sinn áður en glugganum verður lokað í kvöld.
Félagið er að vinna að því að fá landsliðsfyrirliða Armeníu, hinn 25 ára gamla Eduard Spertsyan.
Miðjumaðurinn er með átta mörk og tólf stoðsendingar fyrir Krasnodar og var valinn leikmaður ársins í rússnesku úrvalsdeildinni.

Farke var ráðinn stjóri Krasnodar 2022 en stýrði liðinu aldrei eftir innrás Rússlands í Úkraínu.
Spertsyan vill fara til enska úrvalsdeildarfélagsins.
Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld. Fótbolti.net stendur vaktina og færir ykkur allar helstu fréttir.
Athugasemdir