Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
banner
   sun 01. febrúar 2026 18:38
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Dortmund sex stigum á eftir Bayern
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru tveir leikir fram í þýska boltanum í dag þar sem meistaradeildarbaráttulið Borussia Dortmund og Stuttgart unnu á heimavelli.

Dortmund lenti í miklum vandræðum gegn botnliði Heidenheim en Serhou Guirassy bjargaði málunum með tvennu á tveimur mínútum áður en hann klúðraði vítaspyrnu.

Dortmund var betra liðið og vann að lokum 3-2 eftir að hafa lent undir í upphafi síðari hálfleiks. Lærlingar Niko Kovac eru áfram í öðru sæti þýsku deildarinnar, nú aðeins sex stigum á eftir Þýskalandsmeisturum FC Bayern sem hafa verið að misstíga sig að undanförnu.

Ermedin Demirovic var þá hetjan í Stuttgart þar sem hann skoraði eina mark leiksins eftir stoðsendingu frá Deniz Undav á 90. mínútu. Stuttgart var sterkara liðið og verðskuldaði sigurinn gegn Freiburg.

Stuttgart er í fjórða sæti með 39 stig eftir 20 umferðir, sex stigum á eftir Dortmund.

   31.01.2026 21:23
Þýskaland: Meistararnir halda áfram að misstíga sig


Dortmund 3 - 2 Heidenheim
1-0 Waldemar Anton ('44 )
1-1 Julian Niehues ('45 )
1-2 Julian Niehues ('48 )
2-2 Serhou Guirassy ('68 , víti)
3-2 Serhou Guirassy ('69 )
3-2 Serhou Guirassy ('85 , Misnotað víti)

Stuttgart 1 - 0 Freiburg
1-0 Ermedin Demirovic ('90 )
Athugasemdir
banner