Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
banner
   mán 02. febrúar 2026 00:06
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir dagsins: Fernandes og Solanke skinu skærast
Reijnders og Williams skúrkarnir
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir eftir leiki dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Bruno Fernandes fyrirliði Manchester United var bestur í dramatískum sigri Rauðu djöflanna gegn Fulham. Hann lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Casemiro og sigurmarkið fyrir Benjamin Sesko í uppbótartíma til að hjálpa liðinu að ná í stigin þrjú.

Hann fær 8 í einkunn hjá Sky alveg eins og liðsfélagi sinn Matheus Cunha. Bernd Leno, Timothy Castagne, Jorge Cuenca, Antonee Robinson og Emile Smith-Rowe fengu fimmur.

Tottenham tók á móti Manchester City í stórleik dagsins og var Dominic Solanke maður leiksins með 8 í einkunn. Hann átti stóran þátt í fyrra marki Tottenham og jafnaði svo leikinn til að bjarga stigi.

Xavi Simons átti einnig frábæran leik og fær 8 í einkunn en enginn í liði Man City þótti jafn góður. Tijjani Reijnders átti afleita innkomu af bekknum og var versti maður vallarins með 4 í einkunn.

Liðsfélagar hans Matheus Nunes, Marc Guéhi, Nico González, Rayan Aït-Nouri og Nico O'Reilly fá fimmur fyrir sinn þátt í jafnteflinu, alveg eins og Cristian Romero í liði Tottenham.

Að lokum var Morgan Gibbs-White bestur í jafntefli Nottingham Forest gegn Crystal Palace. Hann fær 8 í einkunn eins og liðsfélagi sinn Elliot Anderson, en Neco Williams var skúrkurinn og fær 4 í einkunn.

Williams bjargaði á marklínu með hendi þegar hann skutlaði sér til að verja skallabolta og var dæmd vítaspyrna og rautt spjald. Forest lék því einum færri allan seinni hálfleikinn og stóðu tíu heimamenn sig með prýði í jöfnum slag, eftir að Palace hafði verið sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.

Sky gaf leikmönnum ekki einkunnir eftir nauman sigur Brentford á Villa Park.

Man Utd: Lammens (7); Dalot (6), Maguire (6), Martinez (6), Shaw (6); Mainoo (6), Casemiro (7); Amad (6), Fernandes (8), Cunha (8); Mbeumo (6)
Varamaður: Sesko (7)

Fulham: Leno (5); Castagne (5), Andersen (6), Cuenca (5), Robinson (5); Berge (6), Iwobi (6); Wilson (6), Smith Rowe (5), Chukwueze (6); Jimenez (6)
Varamenn: Sessegnon (6), Kevin (7)



Tottenham: Vicario (7); Romero (5), Dragusin (6), Palhinha (7); Gray (6), Bissouma (6), Gallagher (7), Udogie (7); Simons (8), Solanke (8), Kolo Muani (6)
Varamenn: Sarr (6), Odobert (7), Tel (6)

Man City: Donnarumma (7); Nunes (5), Khusanov (6), Guehi (5), Ait-Nouri (5); Rodri (6), O’Reilly (5), Bernardo (7); Cherki (7), Haaland (7), Semenyo (7)
Varamenn: Reijnders (4), Nico (5)



Nott Forest: Sels (7), Aina (7), Milenkovic (7), Murillo (7), Williams (4), Sangare (7), Anderson (8), Hudson-Odoi (6), Gibbs-White (8), Dominguez (6), Jesus (6)
Varamenn: Morato (7), Gunn (6), Yates (7), Ndoye (6)

Crystal Palace: Henderson (6), Munoz (6), Lacroix (6), Riad (6), Richards (6), Mitchell (6), Lerma (6), Hughes (6), Johnson (6), Pino (6), Sarr (7)
Varamaður: Uche (6)
Athugasemdir
banner