Táningurinn eftirsótti Sidiki Cherif er búinn að velja Fenerbahce framyfir ensku úrvalsdeildina.
Cherif er 19 ára framherji sem er kominn með 4 mörk í 19 deildarleikjum með Angers í efstu deild í Frakklandi.
Crystal Palace og Wrexham voru bæði í viðræðum við Angers um kaup á leikmanninum en hann vildi frekar fara til tyrkneska stórveldisins Fenerbahce.
Fenerbahce greiðir 4 milljónir evra til að fá Sidiki á lánssamningi út tímabilið og getur keypt hann fyrir 18 milljónir til viðbótar, með 3 milljónir aukalega í árangurstengdar aukagreiðslur. Heildarkaupverð gæti því orðið 25 milljónir evra.
Fabrizio Romano er búinn að setja „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.
Athugasemdir




