Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ómar Björn framlengir eftir gott tímabil á Skaganum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ómar Björn Stefánsson er búinn að framlengja samning sinn við ÍA sem gildir núna næstu þrjú árin.

Ómar Björn er fæddur 2004 og stóð sig mjög vel með ÍA í fyrra og var verðlaunaður með sínum fyrsta landsleik fyrir U21 lið Íslands.

Ómar skoraði 7 mörk í 27 leikjum í deild og bikar og gæti reynst lykilmaður fyrir liðið á komandi árum.

Ómar spilar sem framsækinn miðjumaður og ólst upp hjá Fylki áður en hann skipti yfir til ÍA fyrir síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner