Sádi-arabísku meistararnir í Al-Ittihad lögðu Al-Najma að velli í efstu deild í dag þar sem Mahamadou Doumbia skoraði eina mark leiksins á fjórðu mínútu.
Moussa Diaby lagði markið upp en Al-Ittihad hafnaði tilboði frá Inter í kantmanninn á dögunum. Al-Ittihad er í sjötta sæti deildarinnar með 34 stig eftir 19 umferðir, níu stigum frá meistaradeildarsæti.
Fabinho, Danilo Pereira og Houssem Aouar voru á sínum stað í byrjunarliðinu en Karim Benzema var hins vegar ekki í hóp hjá meisturunum þar sem hann er í verkfalli eftir svikin loforð.
31.01.2026 08:00
Hneykslaður Benzema neitar að spila
Josh Brownhill, fyrrum fyrirliði Burnley, skoraði þá eina mark leiksins er Al-Shabab sigraði Al-Fayha.
Brownhill skoraði á 40. mínútu eftir undirbúning frá Yannick Carrasco. Þetta er annar sigurinn í röð hjá Al-Shabab sem virðist vera komið úr fallbaráttunni. Liðið er með 19 stig eftir 19 umferðir, átta stigum frá fallsvæðinu.
Wesley Hoedt var einnig í byrjunarliði Al-Shabab og kom Unai Hernández inn af bekknum. Chris Smalling var þá á sínum stað í hjarta varnarinnar hjá Al-Fayha, sem er einu stigi fyrir ofan Al-Shabab.
Að lokum gerði Al-Fateh jafntefli við Al-Hazem.
Al-Ittihad 1 - 0 Al-Najma
1-0 Mahamadou Doumbia ('4)
Al-Shabab 1 - 0 Al-Fayha
1-0 Josh Brownhill ('40)
Al-Fateh 1 - 1 Al-Hazem
Athugasemdir



