Heimild: Sampnews24
Þórir Jóhann Helgason er að yfirgefa Lecce og er að ganga til liðs við Venezia. Ítalski miðillinn Sampnews24 greinir frá þessu.
Hann var sterklega orðaður við Sampdoria en virðist nú vera á leið til Venezia.
Hann var sterklega orðaður við Sampdoria en virðist nú vera á leið til Venezia.
Þórir kom við sögu í 21 deildarleik á síðasta tímabili en hefur ekki verið inn í myndinni á þessu tímabili og aðeins komið við sögu í sex leikjum. Hann er ekki í leikmannahópi liðsins sem mætir Torino í Seríu A í dag.
Venezia er á toppnum í Seríu B með eins stigs forystu á Frosinone. Bjarki Steinn Bjarkason er leikmaður Venezia en hann spilar ekki næstu vikurnar vegna meiðsla.
Athugasemdir


