Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 11:35
Kári Snorrason
Daniel Ingi færður upp í aðalliðshóp Nordsjælland
Daniel Ingi er fæddur árið 2007.
Daniel Ingi er fæddur árið 2007.
Mynd: FC Nordsjælland
Daniel Ingi Jóhannesson hefur verið færður úr akademíu Nordsjælland og yfir í aðalliðshóp liðsins. Daniel, er átján ára framsækinn miðjumaður sem getur jafnframt spilað á köntunum.

Daniel gekk til liðs við félagið fyrir tæpum þremur árum frá uppeldisfélaginu ÍA. Hann er bróðir landsliðsmannsins Ísaks Bergmanns og sonur Jóhannesar Karls Guðjónssonar, þjálfara FH.

Hann á að baki 27 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim sjö mörk.

Nordsjælland er í 8. sæti í dönsku Superligaen og hefst deildin aftur um miðjan febrúar eftir vetrarfrí.


Athugasemdir
banner
banner