Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
banner
   sun 01. febrúar 2026 13:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Moyes fékk gult fyrir að fagna: Hefði rennt mér á hnjánum
Mynd: EPA
David Moyes, stjóri Everton, var léttur eftir dramatískt jafntefli liðsins gegn Brighton í gær.

Pascal Gross kom Brighton yfir þegar rúmlega stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma en Beto bjargaði stigi fyrir Everton í blálokin.

Moyes fékk að líta gula spjaldið fyrir að fara inn á völlinn í fagnaðarlátunum.

„Ég mun gera þetta aftur. Ef ég væri hreyfanlegri hefði ég rennt mér á hnjánum. Þá hefði ég bara fengið gult spjald líka svo ég hefði alveg eins átt að fara alla leið," sagði Moyes léttur.


Athugasemdir
banner
banner
banner