Dominic Solanke bjargaði stigi fyrir Tottenham með mögnuðu sporðdrekamarki er liðið tók á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Man City leiddi með tveimur mörkum í leikhlé en Tottenham var sterkari aðilinn í seinni hálfleik og verðskuldaði að næla í stig.
Solanke átti stóran þátt í fyrra marki Tottenham og nýtti mjög erfitt færi til að jafna metin á 70. mínútu eftir fyrirgjöf frá Conor Gallagher.
Fyrirgjöfin datt aðeins fyrir aftan Solanke sem henti sér fram og náði að koma hælnum í boltann. Hann lyfti boltanum þannig yfir Gianluigi Donnarumma til að skora magnað mark sem má sjá hér að neðan.
Alternate angles of Dominic Solanke's scorpion kick goal
byu/Imbasauce insoccer
Athugasemdir


