Barcelona undirbýr tilboð í Lisandro Martinez - Curtis Jones orðaður við Inter - Camavinga orðaður við Arsenal og Liverpool
   lau 31. janúar 2026 23:07
Brynjar Ingi Erluson
Tómas Bent og Hearts með sjö stiga forystu á toppnum
Tómas Bent er fastamaður á miðjunni hjá Hearts
Tómas Bent er fastamaður á miðjunni hjá Hearts
Mynd: Hearts
Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon og lið hans Hearts er með sjö stiga forystu á toppi skosku úrvalsdeildarinnar eftir að liðið vann 3-0 sigur á Dundee United í kvöld.

Tómas Bent kom til Hearts síðasta sumar og verið að spila mikilvæga rullu síðustu mánuði.

Hann byrjaði á miðsvæðinu gegn Dundee í kvöld og hjálpaði liðinu að auka forskot sitt í titilbaráttunni.

Hearts er með 57 stig á toppnum, sjö stigum meira en Rangers sem á leik til góða.

Brynjólfur Andersen Willumsson spilaði klukkutíma í 2-0 tapi Groningen gegn Spörtu Rotterdam í hollensku úrvalsdeildinni. Nökkvi Þeyr Þórisson var ónotaður varamaður hjá Spörtu. Groningen er í 8. sæti með 31 stig en Sparta í 5. sæti með 35 stig.


Athugasemdir