Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 17:31
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Skoraði í fyrsta leik gegn uppeldisfélaginu
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Njarðvík 3 - 1 ÍR
0-1 Stefán Þór Pálsson ('15)
1-1 Valdimar Jóhannsson ('41)
2-1 Bragi Karl Bjarkason ('54)
3-1 Oumar Diouck ('69)

Njarðvík spilaði við ÍR í fyrstu umferð Lengjubikars karla í dag og náðu gestirnir úr Breiðholti forystunni eftir stundarfjórðung í Nettóhöllinni.

Stefán Þór Pálsson skoraði þá eftir stoðsendingu frá Óliver Andra Einarssyni og héldu ÍR-ingar forystunni allt þar til á 41. mínútu, þegar Valdimar Jóhannsson jafnaði metin.

Staðan var jöfn, 1-1, í leikhlé en heimamenn unnu leikinn í síðari hálfleik. Bragi Karl Bjarkason og Oumar Diouck skoruðu sitthvort markið til að tryggja 3-1 sigur.

Bragi Karl er nýlega genginn til liðs við Njarðvík úr röðum FH og var þetta hans fyrsti keppnisleikur fyrir félagið. Hann er uppalinn hjá ÍR og skoraði því gegn uppeldisfélaginu í sínum fyrsta leik með Njarðvík.
Athugasemdir
banner
banner